04.02.2010

Arion banki skrá­ir Haga í Kaup­höll­ina - hlut­ur bankans verður seld­ur í opnu út­boðs­ferli

Stjórn Arion banka hefur ákveðið að óska eftir skráningu verslunarfyrirtækisins Haga í Kauphöllina í samvinnu við Haga og selja hlut bankans í félaginu. Almenningi og fagfjárfestum mun standa til boða að kaupa hluti í félaginu. Núverandi stjórnendum Haga býðst að kaupa 15% hlut og þar af Jóhannesi Jónssyni, starfandi stjórnarformanni Haga, allt að 10% hlut á sama gengi og öðrum fjárfestum.

Þessi leið þjónar hagsmunum bankans, viðskiptavina og starfsfólks Haga. Með skráningu félagsins fer það í gagnsætt og opið söluferli þar sem dreift eignarhald verður tryggt og félagið mun lúta lögboðnum kröfum um upplýsingagjöf. Ítarleg útboðs- og skráningarlýsing, sem Kauphöllin þarf að samþykkja, ásamt áreiðanleikakönnun óháðs aðila eiga að tryggja jafnræði meðal fjárfesta. Erlendir aðilar verða fengnir til ráðgjafar um útboðsferlið.

Arion banki eignaðist hlut í Högum við yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998 sem átti um 95,7% í félaginu. Markmið bankans við skuldaúrlausn félagsins var og er að hámarka endurheimtur í lánasafni og tryggja rekstur Haga til framtíðar. Því taldi bankinn mikilvægt að vanda undirbúning málsins og taka sér nauðsynlegan tíma til að gaumgæfa alla kosti í stöðunni.

Hagar er vel rekið félag sem starfrækir margar þekktar verslanir. Félagið hefur á að skipa færu starfsfólki með mikla reynslu. Ákvörðun Arion banka er tekin í sátt og samvinnu við núverandi stjórnendur félagsins og eru þeir hlynntir skráningu þess í Kauphöllina.

Ný fimm manna stjórn verður skipuð í Högum, sem samanstendur af Guðbrandi Sigurðssyni, Ernu Gísladóttur, Steini Loga Björnssyni, Svönu Helen Björnsdóttur og Jóhannesi Jónssyni, stofnanda Bónuss, sem verður áfram starfandi stjórnarformaður Haga.

Undirbúningur Arion banka að kauphallarskráningu og sölu Haga hefst nú þegar. Gangi allt samkvæmt áætlun má gera ráð fyrir að ferlinu ljúki fljótlega upp úr miðju ári. Kauphallarskráning og útboð verða kynnt ítarlega þegar samþykki Kauphallarinnar liggur fyrir. Stjórn bankans telur að skráning Haga hleypi nýju lífi í hlutabréfamarkaðinn hér á landi.

„Ég er ánægður með þessa lausn,” sagði Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri þegar ákvörðun stjórnar Arion banka var kynnt. „Hagar er öflugt félag sem gegnir mikilvægu hlutverki í smásöluverslun um allt land. Bankinn hefur vandað til verka við úrlausn þessa máls og unnið í samræmi við verklagsreglur sínar. Þótt á móti hafi blásið á köflum í opinberri umræðu um þetta mál, tel ég að þessi lausn sanni gildi verklagsreglnanna og vinnubragða bankans.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira