27.05.2014

Arion banki skrif­ar undir Jafn­rétt­is­sátt­mála UN Women og UN Global Compact

Arion banki skrifaði í dag undir Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Það var Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka sem skrifaði undir sáttmálann fyrir hönd Arion banka á ráðstefnu sem UN Women á Íslandi, Festa og Samtök atvinnulífsins stóðu fyrir og fram fór á Hótel Hilton.

Alls voru það fimm félög sem skrifuðu undir sáttmálann í dag en auk Arion banka voru það Alcoa Global, Fjarðarál, Össur, Actavis á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur. Þessi fyrirtæki bætast í hóp þeirra 14 fyrirtækja sem nú þegar hafa undirritað sáttmálann. Auk þess gaf Stjórnarráðið út yfirlýsingu þess efnis að það hyggst innleiða sáttmálann í stjórnsýslunni og er það í fyrsta skipti sem þjóðríki gegnst að Jafnsáttmálanum á þennan hátt.

Jafnréttissáttmálinn inniheldur sjö viðmið sem fyrirtæki geta haft að leiðarljósi, bæði til að efla konur innan fyrirtækja og sömuleiðis auka áhrif þeirra í samfélaginu. Með undirskriftinni skuldbindur Arion banki sig til að vinna að jafnréttismálum innan bankans, sýna frumkvæði í þeim málum og samfélagslega ábyrgð.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það að skrifa undir Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact er eðlilegt framhald af þeirri vinnu sem hefur verið í gangi innan bankans undanfarin misseri varðandi jafnréttismál. Við höfum sett okkur skýra stefnu í jafnréttismálum og innan bankans er starfandi jafnréttisnefnd sem sér um að fylgja jafnréttisstefnu bankans eftir. Einnig hefur verið sett fram aðgerðaáætlun í jafnréttismálum. Jafnréttissáttmálinn styður þannig við markmið okkar um að hafa jafnréttismál í öndvegi í öllu okkar starfi og stuðla að jöfnum tækifærum kynjanna innan bankans.“

Soffía Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi:

„Það er mikið ánægjuefni að Arion banki hafi skrifað undir Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Með markvissum aðgerðum stuðlar bankinn að auknu jafnrétti innan fyrirtækisins. En þær aðgerðir eru samofnar og nauðsynlegur hluti af sjálfbærri þróun fyrirtækja.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira