24.11.2011
Arion banki styður kvennalandsliðið í handbolta
HSÍ og Arion banki undirrituðu í gær samstarfssamning og verður Arion banki einn af aðalstyrktaraðilum kvennalandsliðs Íslands í handbolta. Arion banki hefur um árabil verið einn helsti styrktaraðili karlalandsliðsins í handbolta og hefur samstarfið við HSÍ verið afar farsælt.
Samningurinn var undirritaður við sama tilefni og landsliðið var tilkynnt sem taka mun þátt á HM kvenna í Brasilíu.
Það er bankanum mikilvægt að geta stutt við bakið á kvennalandsliðinu með sama hætti og stutt hefur verið við karlalandsliðið í handbolta nú þegar þær eru á leið á sitt fyrsta stórmót.
Á meðfylgjandi mynd eru Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka og Guðmundur B. Ólafsson varaformaður stjórnar HSÍ við undirritun samkomulagsins.