13.05.2011
Arion banki styður Skógræktarfélag Íslands
Landsel, dótturfélag Arion banka hefur selt Skóræktarfélagi Íslands um 45.000 trjáplöntur sem félagið eignaðist árið 2010. Um er að ræða trjáplöntur af ýmsum gerðum aðallega garðplöntur.
Ætlun Skógræktarfélagsins er að dreifa plöntunum meðal aðildarfélaga sinna en þær verða einnig notaðar í atvinnuátaksverkefni á nokkrum stöðum á landinu. Arion banki er einn helsti styrktaraðili Skógræktarfélags Íslands og hefur á undanförnum árum lagt skógrækt í landinu lið með margvíslegum hætti.
Samningurinn hefur verið undirritaður og hefur Skógræktarfélag Íslands nú þegar tekið við plöntunum.
Á myndinni hér fyrir neðan eru Magnús Gunnarsson formaður Skógræktarfélags Íslands og Magnús Einarsson framkvæmdastjóri Landsels.