26.07.2010
Arion banki styður unglingastarf GSÍ
Arion banki styður unga og efnilega kylfinga með því að styrkja unglingamótaraðir Golfsambands Íslands í sumar. Samhliða unglingamótaröðinni fer fram áskorendamót sem er fyrir kylfinga sem ekki komast á unglingamótaröðina vegna fjöldatakmarkana. Ungu kylfingarnir hófu formlega keppnistíð sumarsins með fyrsta stigamótinu í lok maí þar sem um 200 ungir kylfingar voru skráðir til leiks. Það mátti sjá á höggum margra að þeir eiga eftir að láta mikið að sér kveða í sportinu í framtíðinni. Nánari upplýsingar um unglingamótaröð og áskorendamót Arion banka eru að finna á www.golf.is.