10.05.2010

Arion banki styrk­ir atvinnu­laust ungt fólk

Arion banki hefur lagt til húsnæði ásamt húsbúnaði og tölvum sem styrk við átaksverkefni til eflingar ungu fólki án atvinnu á Akranesi. Bankinn leggur til húsnæðið til 14 mánaða án endurgjalds. Húsnæðið hefur verið nefnt Skagastaðir.

„Tækifæri“ er verkefni fyrir ungt atvinnulaust fólk sem felst í því að skapa grundvöll til góðra verka. Um er að ræða eins konar hugmyndasetur þar sem áhugasamir fá aðstöðu og stuðning til þess að sinna uppbyggjandi verkefnum og skapa sér eigin tækifæri.

Samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun á Vesturlandi voru um 100 ungmenni á aldrinum 16-30 ára án atvinnu á Akranesi í byrjun janúar 2010. Mikilvægt er að stuðla að því að fyrsta reynsla ungs fólks á vinnumarkaði sé eins jákvæð og mögulegt er. Því er lögð áhersla á að virkja krafta þeirra strax.

Verkefnið er sett upp til tveggja ára til að mæta því atvinnuleysi sem nú blasir við og þegar hafa 45 ungmenni skráð sig en það er tæplega helmingur þeirra sem er á atvinnuleysisskrá. Verkefninu er ætlað að skapa aðstöðu fyrir þennan hóp. Aðstöðu þar sem hægt verður að vinna að skapandi verkefnum, hitta aðra, rjúfa einangrun með ögrandi verkefnum og halda uppi virkri atvinnuleit.

Arion banki er stoltur af því að leggja verkefninu lið.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira