14.10.2014

Arion banki styrk­ir Bleiku slauf­un­a, söfn­unar- og ár­vekni­átak Krabba­meins­félagsins

Eins og flestum er kunnugt um er októbermánuður tileinkaður Bleiku slaufunni, en hún er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Sem fyrr en Arion banki stoltur styrktaraðili átaksins.

Arion banki festi kaup á um 1000 slaufum og gaf starfsfólki bankans og hvetjum við alla til að styrkja Krabbameinsfélagið með kaupum á Bleiku slaufunni.

Það er Stefán Bogi Stefánsson hönnuður og gull-og silfursmiður sem rekur gullsmiðjuna Metal design á Skólavörðustíg sem hannaði slaufuna í ár. Þetta segir Stefán um gripinn:

„Bleika slaufan 2014 hefur mjúka hringlaga lögun sem vísar til umhyggju og verndar og er bleiki steinninn í enda slaufunnar sem lítil skínandi heillastjarna.“

Við hvetjum alla til að bera slaufuna á meðan á átakinu stendur og sýna þannig stuðning við baráttu Krabbameinsfélagsins.

Bleika slaufan á facebook.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira