18.08.2010

Arion banki styrk­ir HSÍ

Arion banki og Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, undirrituðu nýlega samning um áframhaldandi samstarf þar sem Arion banki er nú sem áður einn af aðalbakhjörlum HSÍ.

Merki Arion banka verður framan á landsliðsbúningi karlalandsliðsins líkt og undanfarin ár, auk þess sem samstarfið felur í sér ýmsa aðra þætti.

Samningurinn er til þriggja ára. Höskuldur Ólafsson bankastjóri undirritaði samninginn fyrir hönd bankans en Knútur G. Hauksson, formaður HSÍ fyrir hönd sambandsins.

Við undirritunina kom fram í máli Höskuldar að bankinn væri stoltur bakhjarl HSÍ og að bankinn hefði átt farsælt samstarf við sambandið síðan árið 2003. Það væri bankanum mikils virði að koma að þessu uppbyggilega starfi HSÍ enda væri þjóðin öll að baki landsliðsins.

Knútur G. Hauksson, formaður HSÍ, sagði það mjög mikilvægt fyrir sambandið að hafa jafn sterkan bakhjarl og Arion banka og að þessi samstarfssamningur væri báðum aðilum hagstæður.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira