19.12.2013
Arion banki styrkir jólaúthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar og Rauða kross Íslands
Arion banki hefur veitt Hjálparstarfi kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd og Rauða kross Íslands styrki að upphæð sex milljónir króna, í tilefni jólaúthlutunar þeirra nú í desember.
Hverju félagi um sig var veittur styrkur að upphæð tvær milljónir króna, en starfsfólk bankans gaf einnig jólagjafir til styrktar Mæðrastyrksnefnd.
Arion banki hefur í gegnum árin átt farsælt samstarf við Hjálparstarf kirkjunnar og hefur auk þess komið að ýmsum söfnunarverkefnum á vegum Rauða krossins sem og Mæðrastyrksnefndar síðastliðin ár.