07.06.2011
Arion banki styrkir rekstur íslenskra frumkvöðlasetra
Arion banki og Nýsköpunarmiðstöð Íslands skrifa undir samstarfssamning um rekstur á einu sérhæfðasta frumkvöðlasetri landsins, KÍM - Medical park.
Frá því í október 2008 hefur Nýsköpunarmiðstöð Íslands opnað fjölda frumkvöðlasetra og kemur stofnunin í dag að rekstri níu slíka setra víðsvegar um landið. Samstarfssamningur við Arion banka á dögunum aðstoðar Nýsköpunarmiðstöð Íslands við að halda áfram með virkan rekstur á einu sérhæfðasta setrinu á landinu í dag, KÍM - Medical park.
Rekstur þeirra frumkvöðlasetra sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands tengist á einn eða annan hátt hefur gengið vonum framar. Það er ekki einungis að þakka úthugsaðri og vandvirkri rekstraráætlun fyrir hvert setur heldur ekki síður þeim fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem sýna setrunum mikinn áhuga og leggja sitt að mörkum við reksturinn. Frumkvöðlasetrin fóstra fyrirtæki sem byggja á sérstöðu og nýsköpun og fá fyrirtækin aðstoð við upphaf nýsköpunar og rekstur í allt að fimm ár eða eins lengi og þurfa þykir. Í dag starfa í kringum 300 starfsmenn hjá þeim tæplega 100 fyrirtækjum sem eru á setrunum.
Arion banki og Nýsköpunarmiðstöð Íslands skrifuðu á dögunum undir þriggja ára samstarfssamning um aðkomu að rekstri KÍM - Medical Park sem staðsett er að Vatnagörðum 18. KÍM er frumkvöðlasetur fyrir fyrirtæki í heilbrigðistækni og skyldum greinum og eru þegar í kringum 20 fyrirtæki með virka starfsemi á setrinu. Það er Nýsköpunarmiðstöð Íslands ómetanlegur stuðningur að eiga gott samstarf við utanaðkomandi aðila í tengslum við rekstur setranna og aðstoðar það stofnunina við að uppfylla lagalegt hlutverk sitt sem miðar að því að styrkja stöðu íslensks atvinnulífs og auka lífsgæði í landinu.