09.05.2012
Arion banki styrkir Skólasafnasjóð
Fyrr í dag fór fram úthlutun úr Skólasafnasjóði í höfuðstöðvum Arion banka en 40 skólabókasöfn víðsvegar um landið fengu úthlutað styrk. Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka veitti jafnframt fyrir hönd bankans 1 milljón króna styrk í sjóðinn.
Styrkveitingin er hluti af verkefninu „Ávísun á lestur“ sem stendur frá 23. apríl til 14. maí. Í hvert sinn sem bók er keypt fyrir „Ávísun á lestur“ gefst bókakaupendum færi á að vekja athygli á „sínum“ skóla og skólabókasafni hans. Þá er nafn skólans skrifað í sérstakan reit á ávísuninni. Á grundvelli þessara tillagna er síðan gerður listi yfir þau skólabókasöfn sem koma til greina við úthlutun úr Skólasafnasjóði.
Arion banki hefur beitt sér fyrir auknum lestri barna og unglinga og stendur m.a. fyrir lestrarviku á hverju ári til að hvetja til lesturs. Verkefninu „Ávísun á lestur“ er ætlað að vekja athygli á gildi lestrarkunnáttu, lesskilnings og mikilvægi þess að kerfisbundið sé unnið að því að efla vitund almennings um mikilvægi lestrar fyrir börn og unglinga. Það er því bankanum bæði ljúft og skylt að styðja við bakið á þessu verðuga verkefni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Benedikt Kristjánsson fulltrúa Skólasafnasjóðs, Brynhildi Þórarinsdóttur dósent við Háskólann á Akureyri og Höskuld H. Ólafsson bankastjóra Arion banka við afhendingu styrksins.