01.10.2012
Arion banki styrkir söfnunar- og árveknisátakið Bleika slaufan
Arion banki styrkir árlegt söfnunar- og árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands með kaupum á Bleiku slaufunni fyrir starfsmenn sína.
Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum og eru starfsmenn hvattir til þess að sýna samhug og bera slaufuna meðan á átakinu stendur 1. - 15. október.
Þetta er í þrettánda sinn sem átakinu er hleypt af stokkunum og það er SIGN sem hannaði Bleiku slaufuna í ár.
Bleika slaufan á facebook