21.12.2012

Arion banki styrk­ir Stofn­un Vig­dís­ar Finn­boga­dótt­ur í er­lend­um tungu­málum

Arion banki mun styrkja Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum með sex milljóna króna framlagi sem úthlutað verður á næstu þremur árum. Í samkomulaginu kemur fram að styrknum skuli varið til undirbúnings alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar. Samningur um styrkinn var undirritaður af Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og Höskuldi Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, og vottaður af frú Vigdísi Finnbogadóttur og Monicu Caneman, stjórnarformanni Arion banka, í Háskóla Íslands í gær.

Vigdís Finnbogadóttir þakkaði forsvarsmönnum bankans mikilvægt framlag og sagði það auðvelda stofnuninni að hrinda í framkvæmd metnaðarfullum áformum á sviði tungumála og menningar. Fátt skipti Íslendinga nú meira máli en að stuðla að jákvæðum samskiptum við umheiminn og í því sambandi myndi alþjóðleg tungumálamiðstöð við Háskóla Íslands gegna lykilhlutverki.

Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka, sagði að þeim hjá Arion banka væri ljúft og skylt að koma að því verkefni að styðja við rekstur Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. „Það var auðvelt fyrir okkur að samsvara stefnu bankans við það góða verk sem hér er unnið.“

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er rannsóknastofnun innan Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Á undanförnum árum hefur verið unnið ötullega að því að reisa henni sérstaka byggingu sem hýsa mun kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Þar verður einnig Vigdísarstofnun - alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar sem hlaut í nóvember 2011 samþykki Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, til að starfa undir formerkjum hennar.

Í Vigdísarstofnun verða sérstök heimasvæði fyrir þau 14 tungumál sem kennd eru við Háskóla Íslands auk sérhæfðs bókasafns og gagnasmiðju með efni sem tengist tungumálakennslu og menningarfræðslu. Þar verður einnig aðstaða fyrir fundi og ráðstefnuhald og fyrir samstarf við erlenda og innlenda gestafræðimenn. Einnig verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur sem verður vettvangur fyrir erlend tungumál og menningu og allt sem lýtur að samskiptum Íslands við erlendar þjóðir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira