23.04.2012
Arion banki styrkir verkefnið "Ávísun á lestur"
Arion banki hefur beitt sér fyrir auknum lestri barna og unglinga og stendur m.a. fyrir lestrarviku á hverju ári til að hvetja til lesturs. Það er því bankanum bæði ljúft og skylt að styðja við bakið á Félagi íslenskra bókaútgefenda (FÍBÚT) í landsátakinu „Ávísun á lestur“ sem hefst í dag.
Félag íslenskra bókaútgefenda hefur staðið fyrir verkefninu síðan árið 2006 og er það orðinn árviss atburður að ávísunin berist inn á heimili landsmanna í kringum Alþjóðadag bókarinnar, 23. apríl. Verkefninu er ætlað að vekja athygli á gildi lestrarkunnáttu, lesskilnings og mikilvægi þess að kerfisbundið sé unnið að því að efla vitund almennings um mikilvægi lestrar fyrir börn og unglinga.
Nú hafa ávísanir að andvirði 1.000 króna verið sendar inn á öll heimili í landinu sem nota má á nær öllum sölustöðum bóka á landinu þegar keyptar eru bækur fyrir að lágmarki 3.500 krónur. Alls var um 125.000 ávísunum dreift og verður hægt að nýta þær til og með 14. maí næstkomandi.
Hafi ávísunin ekki borist inn á þitt heimili, hvetjum við þig að nálgast hana í næsta útibúi Arion banka.
Hlökkum til að sjá þig.
Starfsfólk Arion banka