02.04.2014

Arion banki tek­ur þátt í Leynd­ar­dóm­um Suður­lands

Í tilefni af sunnlensku hátíðinni Leyndardómar Suðurlands prýða nú ljósmyndir Ragnars Axelssonar, einnig þekktur sem RAX, útibú Arion banka á Suðurlandi en sýning hans hefur verið tekin niður í Borgartúni 19 og sett upp í Hveragerði, á Selfossi, Hellu, Vík og Kirkjubæjarklaustri. Arion banki tekur þátt í hátíðinni Leyndardómar Suðurlands, sem hófst síðastliðinn föstudag og stendur til 6. apríl, en myndefni sýningarinnar tengist að hluta þessu landssvæði.

Íris Stefánsdóttir, er listráðunautur bankans.

„Myndir þessarar sýningar eru frá Landmannaafrétti og Grænlandi en ljósmyndir Ragnars eru flestum kunnar. Í þremur bókum sínum: Andlit norðursins, Veiðimenn norðursins og Fjallaland hefur hann dregið saman myndfrásagnir af ólíkum heimum norðurslóða og miðlað þeim í sýningum og prentmiðlum um heim allan. Í þessum einstöku myndum sýnir Ragnar menningu sem er óðum að hverfa, baráttu manna og dýra við harðgera náttúru og gamlar hefðir veiðimanna og leitarmanna á fjöllum.“

Þess má til gamans geta að Tónlistarskóli Rangæinga mun skemmta gestum og gangandi í útibúinu á Hellu föstudaginn 4. apríl frá kl. 14:30 til kl. 15. Sama dag munu nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga ásamt Margréti Stefánsdóttur taka nokkur lög í útibúi bankans á Selfossi frá kl. 15 til kl. 15:30. Allir velkomnir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira