27.04.2012
Arion banki tekur þátt í tilraunaverkefni - greiðslur í gegnum snjallsíma
Arion banki skrifaði nýverið undir samstarfssamning við Valitor um innleiðingu á nýrri snjallkortatækni sem hefur í för með sér að hægt verður að greiða kreditgreiðslur með snjallsíma, snertilaust við posabúnað. Hér er um nýja tækni að ræða sem getur í framtíðinni leyst kreditkort af hólmi eins og við þekkjum þau í dag en verkefnið er þó enn á tilraunastigi.
Arion banki er einn stærsti útgefandi kreditkorta hér á landi en sú tækni sem samstarfið felur í sér gerir fólki kleift að greiða fyrir vöru eða þjónustu með kreditkorti sínu úr farsímanum. Kreditkortaupplýsingum er komið fyrir á SIM korti í snjallsímum og notast er við svokallaða NFC tækni (Near Field Communication) til að framkvæma greiðsluna. Undirbúningur er hafinn og í haust er áætlað að fyrstu símtækin sem bjóða upp á þessa tækni fari í prófanir.
Nýverið gekk Valitor í samstarf við alþjóðlega fyrirtækið Oberthur Technologies, eitt stærsta fyrirtæki í heimi á sviði lausna með snjallkortatækni, í því skyni að innleiða snertilausar kreditgreiðslur með snjallsímum. Gengið hefur verið úr skugga um öryggi greiðslna með þessum greiðsluhætti og farsímaframleiðendur eru nú þegar byrjaðir að framleiða símtæki með möguleikum á NFC tækni.
Starfsfólk Arion banka og Valitor við undirritun samstarfssamningsins. Vilhjálmur Alvar Halldórsson, Kristján Þór Harðarson frá Valitor, Hildur Hörn Daðadóttir, Bergsveinn Sampsted frá Valitor og Lee Roy Tipton.