14.04.2014

Arion banki undir­býr skulda­bréfa­út­gáfu í evr­um

Arion banki hefur samið við Citi, Deutsche Bank og Nomura um skipulagningu funda með evrópskum fjárfestum sem fram munu fara á næstu dögum. Arion banki stefnir í kjölfarið að skuldabréfaútgáfu í evrum, að því gefnu að kjör og markaðsaðstæður séu viðunandi. Fjárfestafundirnir nú eru rökrétt framhald af þeirri vinnu sem fram hefur farið undanfarin ár við að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans og opna aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum.

Snemma árs 2013 gaf bankinn út skuldabréf í norskum krónum og var þar með fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið til að sækja sér erlenda fjármögnun frá árinu 2007. Í upphafi þessa árs fékk bankinn svo lánshæfismatið BB+ frá alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækinu Standard & Poor‘s, fyrstur íslenskra banka, en lánshæfismatið frá S&P stækkar til mikilla muna þann hóp fjárfesta sem áhuga hefur á skuldabréfum bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira