04.12.2013

Arion banki val­inn banki ársins á Ís­landi af tíma­rit­inu The Ban­ker

Tímaritið The Banker, sem gefið er út af The Financial Times, hefur valið Arion banka sem banka ársins á Íslandi árið 2013. Er þetta í fyrsta skipti frá árinu 2007 sem tímaritið veitir íslenskum banka þessa viðurkenningu og er það til marks um þann árangur sem náðst hefur á undanförnum árum við uppbyggingu nýs fjármálakerfis hér á landi. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, veitti viðurkenningunni móttöku fyrir hönd bankans.

Í rökstuðningi fyrir vali sínu á Arion banka litu fulltrúar tímaritsins ekki síst til árangurs bankans við að auka fjölbreytni fjármögnunar. Arion banki hefur sótt sér nýja fjármögnun bæði hér á landi sem og erlendis og minnkað þar með vægi innlána í fjármögnun bankans. Fyrr á árinu gaf Arion banki út skuldabréf í norskum krónum og varð þar með fyrsti íslenski bankinn frá árinu 2007 til að gefa út skuldabréf í erlendri mynt. Að auki var bankinn fyrstur íslenskra fjármálafyrirtækja til að gefa út óverðtryggð sértryggð skuldabréf á innlendum markaði.

The Banker horfði einnig til þess mikla árangurs sem náðst hefur við að lækka hlutfall lána í alvarlegum vanskilum í lánasafni bankans. Íslenskir bankar hafa glímt við hátt hlutfall vanskila en hafa náð miklum árangri á undanförnum árum ekki síst í kjölfar þeirrar umfangsmiklu vinnu sem farið hefur fram við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og heimila.

Þessu til viðbótar var við val á Arion banka sem banka ársins á Íslandi horft til öflugrar vöruþróunar bankans og þá ekki síst þess frumkvæðis og þeirra nýjunga sem Arion banki hefur kynnt á íslenskum íbúðalánamarkaði á undanförnum árum eins og óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til fimm ára. Einnig var horft til þeirra fjölbreyttu þjónustuleiða sem Arion banki býður viðskiptavinum sínum upp á og þá ekki síst Arion banka appsins fyrir snjallsíma sem hefur verið afar vel tekið af viðskiptavinum bankans.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það er virkilega ánægjulegt að fá viðurkenningu þessa virta fagtímarits. Okkar markmið á undanförnum árum hefur verið að byggja upp góðan banka. Það uppbyggingarstarf hefur bæði falið í sér að taka á erfiðum úrvinnslumálum frá fyrri tíð en einnig að horfa fram á veginn og leita nýrra leiða til að veita okkar viðskiptavinum góða þjónustu og mæta síbreytilegum þörfum þeirra. Starfsfólk bankans á hrós skilið fyrir þeirra góða starf, þetta er viðurkenning á þeirra störfum.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira