01.04.2011
Arion banki vann liðakeppni Mottumars annað árið í röð
Arion banki bar sigur úr býtum í liðakeppni Mottumars 2011. Bankinn ásamt starfsfólki safnaði tæplega 1.600.000 krónum sem er glæsilegur árangur og hærri upphæð en í fyrra. Bankinn er auk þess aðalbakhjarl átaksins.
Forstjóri Krabbameinsfélagsins, Ragnheiður Haraldsdóttir var ánægð með söfnunina enda söfnuðust alls tæplega 30.000.000 króna.
„Við erum þakklát fyrir þann mikla stuðning sem árvekni- og fjáröflunarátakið hefur hlotið meðal almennings og það hefur verið mjög gaman að sjá allan þann fjölda karlmanna sem skartar mottum í mánuðinum! Þá viljum við einnig þakka öllum þeim ótal aðilum sem lögðu vinnu sína af mörkum í þágu Mottumars“ segir Ragnheiður á heimasíðu Krabbameinsfélagins.
Vinningshafar í Mottumars. Fremri röð t.h. Einar Þór Einarsson, fulltrúi Arion banka.
Lið Arion banka í Mottumars 2011.