31.03.2012
Arion banki vann liðakeppni Mottumars þriðja árið í röð
Arion banki bar sigur úr býtum í liðakeppni Mottumars 2012. Bankinn, ásamt starfsfólki og starfsmannafélagi, safnaði tæplega 1.400.000 krónum en bankinn er auk þess einn af stærstu bakhjörlum átaksins.
Forstjóri Krabbameinsfélagsins, Ragnheiður Haraldsdóttir, var ánægð með söfnunina enda höfðu hátt í 29 milljónir króna safnast þegar áheitakeppninni lauk í gær. Söfnuninni er þó ekki lokið þar sem sala á varningi tengdum Mottumars heldur áfram út mánuðinn og verður því ekki ljóst fyrr en eftir nokkra daga hversu há fjárhæð hefur safnast í heildina.
Arion banki hefur átt farsælt samstarf við Krabbameinsfélag Íslands um áraraðir og er bakhjarl stórra átaka félagsins, bæði Bleiku slaufunnar og Mottumars.
Sigurvegarar í Mottumars 2012. Fremri röð t.v. Einar Þór Einarsson, fulltrúi Arion banka, tók við verðlaunum fyrir hönd liðs Arion banka.