26.01.2012

Arion banki veit­ir sér­stak­an af­slátt af greiðsl­um síð­asta árs

Kaflaskil í starfsemi bankans

Skilvísir einstaklingar í viðskiptum við Arion banka munu á morgun, föstudaginn 27. janúar, fá sérstakan afslátt af greiðslum síðasta árs vegna lána þeirra hjá bankanum. Upphæð sem nemur afslættinum verður lögð inn á reikning þeirra hjá Arion banka.

Að langstærstum hluta er um að ræða afslátt vegna íbúðalána. Nemur afslátturinn tveimur gjalddögum síðasta árs miðað við að 12 gjalddagar hafi verið greiddir, eða 16,7% af greiddum gjalddögum. Einnig er veittur 30% afsláttur af vaxtagreiðslum síðasta árs vegna yfirdráttarlána.

Frá því Arion banki var stofnaður hafa aðgerðir bankans fyrst og fremst beinst að þeim hópi viðskiptavina sem glímt hefur við mestan greiðslu- og skuldavanda. Því átaki fer að ljúka og þar með verða ákveðin kaflaskil í starfsemi bankans. Aðgerðin nú er annars eðlis og snertir alla skilvísa lánþega bankans. Hún kemur í kjölfar yfirtöku bankans á lánasafni þrotabús Kaupþings.

Að meðaltali nemur greiðsla vegna íbúðalána 125 þúsund krónum og greiðsla vegna yfirdráttalána 13 þúsund krónum. Samtals fá um 33 þúsund viðskiptavina bankans greitt til baka frá Arion banka föstudaginn 27. janúar.

Kostnaður vegna þessa er áætlaður um 2,5 milljarðar króna. Þar með er kostnaður bankans vegna aðgerða er snúa að einstaklingum og heimilum orðinn rúmir 40 milljarðar króna sem er rúmum 5 milljörðum umfram það svigrúm bankans sem skapaðist við yfirtöku lánanna.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Við sem störfum hjá Arion banka höfum undanfarin ár eða frá stofnun bankans fyrst og fremst beint sjónum okkar að úrlausnarmálum viðskiptavina sem glímt hafa við hvað mestan fjárhagsvanda, ásamt því að byggja upp nýjan og traustan banka. Þar hefur umtalsverður árangur náðst. Nýverið tók svo bankinn yfir íbúðalánasafn sem verið hafði í eigu þrotabús Kaupþings og fékk þar með fullt forræði yfir lánasafninu. Hvort tveggja markar ákveðin kaflaskil. Því viljum við nota tækifærið og sýna skilvísum viðskiptavinum okkar þennan þakklætisvott fyrir samstarfið á undanförnum þremur árum.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira