11.08.2011
Arion banki verður helsti bakhjarl tónlistarviðburða Hörpu
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús og Arion banki undirrituðu samning í dag þess efnis að Arion banki verði einn helsti bakhjarl þeirra viðburða sem Harpa mun standa fyrir. Markmið samningsins er að styrkja menningar- og tónlistarstarf á Íslandi og kynna Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús fyrir almenningi og þá listviðburði sem Harpa skipuleggur. Það voru Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpu og Höskuldur H.Ólafsson, bankastjóri Arion banka sem undirrituðu samninginn í Hörpu í dag í Grænalóni á annarri hæð.
“Það er mikilvægt að Harpa komi með nýja vídd inn í tónlistarlíf Íslands og bjóða fram vandaða viðburði með erlendum listamönnum. Það er því gleðiefni að fá bakhjarla eins og Arion banka til þess að gera slíkt að veruleika. “
Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka lýsti yfir ánægju bankans að fá að taka þátt í tónlistarviðburðum Hörpu. “ Það er mikilvægt að skapa góðan rekstrargrundvöll fyrir þetta hús og það er okkur mikill heiður að fá að taka þátt í því. “ Fyrstu tónleikar sem Harpa hélt með styrk frá Arion banka voru tónleikar Mariu Joao Pires og Maxim Vengerov í júlí. Næsti viðburður verða tónleikar Gautaborgarsinfóníunnar undir stjórn Gustavo Dudamel þann 19.september.
Við undirritun samningsins í dag. Mynd/ Eyþór Árnason.
Gissur Páll Gissurarson söng við undirskriftina. Mynd/ Eyþór Árnason.