19.08.2011

Arion banki við Hlemm verður "tape-­aður" á Menningarnótt

Arion banki, Apear Collective og Urban Utd. munu standa fyrir óvenjulegri uppákomu á Menningarnótt fyrir utan útibú Arion banka við Hlemm. Þar mun listahópurinn Apear Collective umturna svæðinu með hjálp límbands.

Um 20 listamenn munu taka þátt í verkefninu en Apear Collective er hópur fjöllistamanna sem koma víða að. Meðan á gjörningnum stendur munu plötusnúðar spila og börn fá blöðrur frá bankanum. Við Hlemm og í nánasta umhverfi verða svo ótal uppákomur í gangi yfir daginn. Markmiðið er að búa til skemmtilega stemningu á svæðinu og gera borgina líflegri.

Límbandslist („Tape Art“) er tiltölulega nýtt form götulistar og verður þetta stærsti viðburður sinnar tegundar á Íslandi. Oftar en ekki er götulist í hugum fólks tengd skemmdarverkum og sjónmengun, en límbandslist er jákvætt form götulistar sem eyðileggur ekkert og auðvelt er að fjarlægja listaverkið.

Sérstakur gestur verður Fejzo Kosir en hann er í fremstu röð listamanna í Evrópu sem hafa tileinkað sér þetta sérstaka listform.

Listamennirnir munu hefja gjörninginn klukkan ellefu um morguninn og halda áfram fram eftir degi. Hvetjum við alla til að kíkja við og fylgjast með umbreytingu Arion banka við Hlemm og þiggja kaffisopa. Buff og blöðrur verða í boði fyrir börnin.

Hér má sjá myndband af Youtube sem sýnir þetta form götulistar og listamanninn Fejzo að verki.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira