29.09.2010

Arion banki vill endur­reisa Sig­urplast

Í kjölfar yfirlýsinga forsvarsmanna Sigurplasts ehf., um að þeir hafi óskað eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu, vill Arion banki koma eftirfarandi á framfæri:

Að sögn forsvarsmanna Sigurplasts ehf. hafa þeir óskað eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu. Arion banki er einn stærsti kröfuhafi Sigurplasts og er jafnframt eigandi þriðjungs hlutafjár félagsins. Forsvarsmönnum Sigurplasts hefur lengi verið ljóst að bankinn vill endurskipuleggja fjárhag félagsins, skjóta traustari stoðum undir rekstur þess og bjarga þar með þeim störfum sem í húfi eru.

Sigurplast hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota og skiptastjóri hefur ekki verið skipaður. Gert er ráð fyrir því að héraðsdómur taki beiðni forsvarsmanna félagsins fyrir á allra næstu dögum og skipi félaginu skiptastjóra.

Til að taka af vafa starfsmanna, viðskiptamanna og annarra hagsmunaaðila vill Arion banki koma því á framfæri að hann hann hyggst óska eftir því við skiptastjóra að áframhaldandi rekstur félagsins verði tryggður. Þannig hefur bankinn fullan hug á að taka þátt í endurreisn fyrirtækisins, tryggja störf þeirra starfsmanna sem að framleiðslunni koma og áframhaldandi viðskipti viðskiptavina félagsins.

Ef skiptastjóri fellst á aðkomu Arion banka um endurreisn félagsins, hyggst Arion banki selja félagið í opnu söluferli síðar. Bankinn mun kynna nýja tilhögun á rekstri Sigurplasts nánar ef samkomulag næst við skiptastjóra félagsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira