30.12.2011
Árleg endurgreiðsla til e-korthafa
Handhafar e-korta fengu sína árlegu endurgreiðslu nú fyrir jólahátíðirnar. Endurgreiðslan er hluti af árlegum ávinningi sem e-korthafar fá og voru rúmar 85 milljónir króna endurgreiddar til korthafa.
Í fyrra gafst e-korthöfum í fyrsta sinn kostur á að ánafna Mæðrastyrksnefnd endurgreiðsluna að hluta eða öllu leyti. Þetta árið söfnuðust 772.403 krónur sem er næstum tvöföldun frá fyrra ári.