29.12.2010
Árleg endurgreiðsla til e-korthafa
Handhafar e-korta fengu sína árlegu endurgreiðslu nú fyrir jólahátíðarnar. Endurgreiðslan er hluti af árlegum ávinningi sem e-korthafar fá og voru rúmar 98 milljónir króna endurgreiddar til korthafa.
Í ár gafst e-korthöfum í fyrsta sinn kostur á að ánafna Mæðrastyrksnefnd endurgreiðsluna að hluta eða öllu leyti. Fjöldi korthafa nýtti sér þessa nýbreytni og styrkti þannig starf Mæðrastyrksnefndar fyrir jólin.