03.04.2012
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn þann 25. apríl nk.
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl næstkomandi, kl. 17.15, í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19.
Á fundinum verður m.a. kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og þurfa framboð til stjórnar að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund. Ber að tilkynna framboð til stjórnar með sannanlegum hætti.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst á heimasíðu sjóðsins, frjalsilif.is. Stjórnin vill hvetja sjóðfélaga til þess að mæta á fundinn.