02.04.2012
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn þann 25. apríl nk
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl næstkomandi, kl. 17:15, í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19.
Dagskrá
Skýrsla stjórnar
Kynning ársreiknings
Tryggingafræðileg athugun
Fjárfestingarstefna sjóðsins
Kosning stjórnar
Kjör endurskoðanda
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
Laun stjórnarmanna
Önnur mál
Á fundinum verður m.a. kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og einn varamann til eins árs. Framboð til stjórnar þurfa að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund. Tilkynna ber framboð til stjórnar með sannanlegum hætti. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar hér á síðunni og verða aðgengilegar í höfuðstöðvum Arion banka tveimur vikum fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.