13.03.2009

Árs­upp­gjör Frjálsa lífeyris­sjóðsins 2008 - Góð ávöxt­un m.v. markaðs­aðstæður og óskert rétt­indi

Frjálsi lífeyrissjóðurinn þarf ekki að skerða réttindi og lífeyri sjóðfélaga í tryggingadeild sjóðsins þrátt fyrir þann ólgusjó sem ríkti á verðbréfamörkuðum árið 2008. Tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 4,8% í lok árs 2008 sem er innan þeirra marka sem lög mæla fyrir um.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn fór ekki varhluta af erfiðleikum á fjármálamörkuðum árið 2008. Aðgerðir í Eignastýringu Kaupþings, sem er rekstraraðili sjóðsins, höfðu þó miðað að því að minnka markvisst áhættu með því að auka vægi ríkisskuldabréfa og selja hlutabréf. Þannig tókst að draga verulega úr neikvæðum áhrifum á eignasafn Frjálsa lífeyrissjóðsins sem endurspeglast í ávöxtun sjóðsins árið 2008.

Ávöxtun 2008

Meðalávöxtun sl. 5 ára

Frjálsi 1

-4,9%

8,5%

Frjálsi 2

12,3%

10,1%

Frjálsi 3

23,6%

12,3%

Frjálsi Áhætta

-7,4%

Tryggingadeild

-7,6%

8,5%

  • Hrein eign sjóðsins var í árslok rúmlega 68 milljarðar kr. og jókst um 2 milljarða á árinu.

  • Fjöldi sjóðfélaga í árslok var tæplega 42.000 en um 15.400 manns greiddu iðgjöld í sjóðinn á árinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira