01.10.2011

Ár­veknisátakið Bleika slauf­an hefst í dag

Bleika slaufan, fjáröflunar- og árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega í dag 1. október 2011. Eins og undanfarin ár er Arion banki aðalstyrktaraðili átaksins.

Krabbameinsfélagið hefur sett sér það markmið að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október þegar slaufusölunni lýkur. Verndari Krabbameinsfélagsins, frú Vigdís Finnbogadóttir afhenti í gær við hátíðlega athöfn fyrstu slaufurnar sex konum sem allar hafa barist við krabbamein.

Mikil leynd var yfir hönnun slaufunnar í ár. Krabbameinsfélagið fékk konur frá Suður-Afríku til að perla slaufuna, koma þær frá þorpum sem kallast Zulufadder. Flestar konurnar eru ömmur og annast þær margar 12-14 börn hver, því börnin hafa misst foreldra sína úr alnæmi. Í raun hefur heil kynslóð á þessu svæði horfið sökum sjúkdómsins.

Með kaupum á Bleiku slaufunni í ár er því bæði verið að styrkja Krabbameinsfélag Íslands sem og Zulufadder þorpin. Arion banki hefur fest kaup á um 1000 slaufum til að gefa starfsfólki bankans og hvetjum við alla til að styrkja Krabbameinsfélagið með kaupum á Bleiku slaufunni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira