21.03.2013

Átakið Um­hyggju­sam­ir ein­stak­lingar

Í dag hefst átak sem felst í því að byggja upp öflugan styrktarsjóð á vegum Umhyggju – félags til stuðnings langveikum börnum. Átakið felur í sér að safna áskriftum frá Umhyggjusömum einstaklingum – fólki sem greiðir mánaðarlegt framlag í styrktarsjóðinn og stendur þannig á bak við langveik börn og fjölskyldur þeirra.

Hægt er að gerast Umhyggjusamur einstaklingur með því að skrá sig á vefsíðunni www.umhyggjusamir.is. Vonandi er að sem flestir taki þátt, með öflugum hópi er hægt að fjölga litlum kraftaverkum á hverjum degi.

Arion banki er bakhjarl átaksins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira