19.05.2010

At­huga­semd Arion banka við for­síðu­frétt Frétta­blaðsins

Ranghermt er í forsíðufrétt Fréttablaðsins miðvikudaginn 19. maí að Séreignarsjóður Kaupþings hafi verið í umsjón Frjálsa lífeyrissjóðsins. Séreignarsjóðurinn var í umsjón gamla Kaupþings og hafði Frjálsi lífeyrissjóðurinn enga aðkomu að fjárfestingarstefnu, rekstri og fjárfestingum Séreignarsjóðs Kaupþings.

Í fréttinni kom einnig fram að sjóðfélagar gátu ekki losað eignir úr Séreignarsjóði Kaupþings fyrr en þeir ,,komust á aldur“. Þetta er einnig rangt. Sjóðfélagar gátu flutt inneign sína í annan séreignarsjóð líkt og sjóðfélagar í öðrum séreignarsjóðum kysu þeir svo.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er sjálfstæður lögaðili með eigin stjórn og var með rekstrarsamning við Kaupþing og nú við Arion banka um rekstur og eignastýringu sjóðsins. Þess má geta að Frjálsi lífeyrissjóðurinn var valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi á árlegri verðlaunahátíð fagtímaritsins Investment Pension Europe í nóvember sl.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira