24.06.2010

At­huga­semd frá Arion banka

Arion banki hefur metið dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og möguleg áhrif á eigið fé bankans.

Kæmi til þess að íbúðalán bankans verði dæmd ólögmæt hefði það neikvæð áhrif á eigið fé bankans en ekki að því marki að það stefni efnahag bankans í hættu.

Í þessu sambandi má nefna að verði öll lán í erlendum myntum til einstaklinga dæmd ólögleg, þá lækkar nafnvirði lánanna verulega. Áhrifin á Arion banka yrðu ekki meiri en svo að bankinn stæðist áfram lögbundnar kröfur um eigið fé.

Eiginfjárhlutfall bankans er sterkt og yfir ítrustu kröfum FME.

Arion banki tekur fram að fái greiðendur erlendra lána sér dæmdan betri rétt í Hæstarétti, missa þeir ekki þann rétt þó þeir hafi skuldbreytt lánum sínum yfir í íslenskar krónur.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira