10.02.2010
Athugasemd frá Arion banka vegna fjölmiðlaumræðu um endurskipulagningu Samskipa
Arion banki var ekki leiðandi aðili við endurfjármögnun Samskipa. Bankinn kom að málinu sem lánardrottinn Samskipa hf., dótturfélags Samskips Holding. Erlenda starfsemi Samskipa, sem er langstærsti hluti félagsins, er fjármögnuð af hollenska bankanum Fortis. Fortis banki hafði betri tryggingar fyrir lánum sínum en Arion banki.
Við endurfjármögnun Samskipa þurfti ekki að afskrifa neinar skuldir félagsins, heldur náði Arion banki að styrkja stöðu sína sem lánveitandi innan Samskipa. Ef ekki hefði náðst að semja um endurskipulagninguna var það mat Arion banka að verulega líkur væru á því að bankinn myndi tapa stærstum hluta af sínum kröfum.
Það er rangt sem hefur verið haldið fram að Arion banki hafi afhent einhverjum Samskip, enda hafði bankinn aldrei umráðarétt yfir félaginu. Arion banki er ánægður með að ekki hafi þurft að koma til afskrifta á lánum og bankanum tókst að tryggja veðstöðu sína mun betur í endurskipulagningu félagsins.