11.02.2010

At­huga­semd­ir frá Arion banka vegna fjöl­miðlaum­ræðu um 1998 og Haga

Vegna umræðu í fjölmiðlum undanfarna daga um málefni Haga vill Arion banki árétta:

  • Stjórn Arion banka ákvað að skrá verslunarfyrirtækið Haga í Kauphöll Íslands og bjóða fjárfestum og almenningi að kaupa hlut bankans í opnu útboði.

  • Stjórnendum Haga er gefinn kostur á að kaupa 5% hlut í félaginu og Jóhannesi Jónssyni býðst að kaupa 10% hlut á sama verði og aðrir kaupendur.

  • Rekstur Haga gengur vel. Bankinn telur því mikilvægt í söluferlinu að núverandi stjórnendur Haga sinni áfram störfum sínum og lýsi því yfir að þeir hafi áhuga á að gerast hluthafar í fyrirtækinu.

  • Hagar er fyrsta fyrirtækið sem tekin er ákvörðun um að skrá á hlutabréfamarkað eftir bankahrunið, en starfhæfur hlutabréfamarkaður er afar mikilvægur fyrir framþróun og endurreisn atvinnulífsins. Skráning á hlutabréfamarkað er einnig besta leiðin til að tryggja dreifða eignaraðild og gagnsæi í rekstri fyrirtækja.

  • Strangari reglur um dreifða eignaraðild fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll hafa tekið gildi og fleiri ráðstafanir í sömu átt hafa verið boðaðar. Verulegar líkur eru á frekari takmörkun á eignaraðild einstakra aðila í útboðinu á Högum.

  • Stöðugleiki í rekstri Haga er mikilvægur fyrir tilvonandi fjárfesta. Arion banki telur að með fyrirkomulaginu sem nú hefur verið kynnt sé félagið vel í stakk búið að verða að almenningshlutafélagi.

  • Bankinn telur mikilvægt að eignarhald á félaginu færist með skjótum hætti til fjárfesta. Það samræmist ekki hlutverki banka að eiga rekstrarfélög til lengri tíma.

  • Það er ekki rétt sem haldið hefur verið fram, að Jóhannesi Jónssyni bjóðist að kaupa hlut í Högum, á sama tíma og bankinn afskrifi persónulegar skuldir hans. Engar persónulegar ábyrgðir eru fyrir lánum 1998 ehf. Það fer eftir því hvernig söluferli Haga gengur, hversu mikið bankinn fær upp í skuldir 1998 ehf.

  • Þegar sölu Haga lýkur og vitað er hversu mikið fæst upp í skuldir 1998 ehf. mun bankinn ganga eins langt og lög heimila við að innheimta skuldir félagsins. Í því felst að ganga að ábyrgðum sem eru fyrir skuldum.

  • Hagar er fjárhagslega heilbrigt fyrirtæki sem hefur staðið við allar skuldbindingar sínar. Umræða um að setja félagið í gjaldþrotameðferð er byggð misskilningi.

  • Það er von Arion banka að sem flestir fjárfestar gerist hluthafar í Högum. Bankinn er ekki að hygla einum eða neinum í þessu ferli. Markmið hans er fyrst og fremst að sjá til þess að rekstur Haga verði áfram með þeim myndarlega hætti sem verið hefur. Þannig verða kaup á hlutabréfum í Högum arðbær og góð fjárfesting.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira