21.11.2008
Aukaársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins 16. desember
Aukaársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 16. desember nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Kaupþings, Borgartúni 19.
Dagskrá:
1. Ávarp stjórnarformanns
2. Rekstur og ávöxtun ársins 2008
3. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
4. Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á www.frjalsilif.is og verða aðgengilegar í höfuðstöðvum Kaupþings tveimur vikum fyrir aukaársfund. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.