15.02.2010

Betri rétt­ur viðskipta­vina Arion banka tryggður

Til þess að taka af allan vafa vegna nýlegs úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um gengistryggð bílalán, vill Arion banki árétta að fái greiðendur erlendra lána sér dæmdan betri rétt í Hæstarétti, missa þeir ekki þann rétt þó þeir hafi skuldbreytt lánum sínum yfir í íslenskar krónur.

Yfir eitt þúsund viðskiptavinir Arion banka hafa þegar nýtt sér lausnir bankans til höfuðstólslækkunar. Þessir viðskiptavinir og þeir sem koma til með að nýta sér lausnir bankans, hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti, komist Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gengistryggð lán séu ólögleg.

Arion banki hefur einnig ákveðið að krefjast ekki uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka ársins 2010. Það er óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira