17.02.2011
Biggahádegi í Arion banka
Svonefnt Biggahádegi verður haldið í dag í fyrirlestrasal Arion banka Borgartúni 19.
Þröstur Helgason bókmenntafræðingur og Guðmundur Oddur Magnússon listfræðingur munu fjalla um Birgi Andrésson (1955-2007), list hans og feril. Auk þess verða um 20 verk eftir Birgi úr safni Rögnu Róbertsdóttur og Péturs Arasonar til sýnis.
Fyrirlestur Þrastar og Guðmundar hefst klukkan 12 og bjóða Arion banki og Crymogea alla velkomna.
Sýningin mun standa lengur og er öllum opin á opnunartíma bankans frá kl. 8:00-17:00.