08.10.2013
Bleikir fánar í Arion banka
Um árabil hafa Arion banki og Krabbameinsfélag Íslands átt gott samstarf og er bankinn stoltur af því að vera styrktaraðili samtakanna. Þann 1. október voru bleikir fánar dregnir að húni við starfsstöðvar bankans í tilefni af Bleiku slaufunni, fjáröflunar- og árvekniátaki Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum.
Undanfarin ár hefur Arion banki styrkt átakið með kaupum á Bleiku slaufunni fyrir starfsmenn sína og var engin undantekning þar á þetta árið. Slaufunni hefur nú verið dreift til allra starfsmanna bankans sem bera hana með stolti.
Jónína Lárusdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Arion banka:
„Bankar bera ábyrgð gagnvart samfélagi sínu og axlar Arion banki þá ábyrgð meðal annars með stuðningi sínum við Krabbameinsfélagið. Nú er það svo að krabbamein er mjög algengur sjúkdómur. Allir hafa því haft af honum einhver kynni; annað hvort sjálfir eða í gegnum fjölskyldu eða vini. Ég er engin undantekning þar á. Ég er því mjög stolt og ánægð með stuðning Arion banka við Krabbameinsfélag Íslands.“
Arion banki hvetur starfsmenn sína sem og aðra til að sýna samhug og bera slaufuna á meðan á átakinu stendur og sýna þannig stuðning við baráttu Krabbameinsfélagsins.