07.10.2011
Bleikur föstudagur í Arion banka
Október er mánuður Bleiku slaufunnar sem er árveknisátak gegn krabbameini hjá konum. Arion banki er aðalstyrktaraðili átaksins líkt og undanfarin ár.
Í tilefni af bleikum föstudegi bauð Arion banki starfsfólki sínu upp á vöfflur þar sem starfsmenn bankans bökuðu ofan í mannskapinn. Starfsfólk var hvatt til þess að mæta í bleiku og sýna þannig samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum.
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, bauð starfsfólki bankans auk þess upp á fyrirlestur þar sem hún fjallaði um ferð sjálfboðaliða á vegum Krabbameinsfélagsins til Suður-Afríku þar sem bleiku slaufurnar voru búnar til í ár.
Áður en fyrirlesturinn hófst veitti Skjöldur, starfsmannafélag Arion banka, Krabbameinsfélaginu styrk að upphæð 321.000 eða 500 krónur á hverja konu sem er í starfsmannafélaginu. Auk þess veitti starfsfólk Stefnis og Eignastýringar Arion banka Krabbameinsfélaginu styrk að upphæð 41.000 sem það safnaði með áheitum í morgun.
Eins og áður hefur komið fram fékk Krabbameinsfélagið suður-afrískar konur frá þorpum sem kallast Zulufadder til að perla slaufuna. Flestar konurnar eru „ömmur“ og annast þær margar 12-14 börn hver, því börnin hafa misst foreldra sína úr alnæmi. Í raun hefur heil kynslóð á þessu svæði horfið sökum sjúkdómsins. Með kaupum á Bleiku slaufunni í ár er því bæði verið að styrkja Krabbameinsfélag Íslands sem og Zulufadder þorpin.
Við hvetjum alla til að styrkja Krabbameinsfélagið með kaupum á Bleiku slaufunni.
Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá starfsmenn bankans baka vöfflur og fulltrúa Krabbameinsfélagsins veita styrkjunum móttöku.