26.04.2012
BMV Holding kaupir B.M. Vallá
BMV Holding hefur keypt allt hlutafé í B.M. Vallá ehf. Seljandi er Eignabjarg, dótturfélag Arion banka. Að BMV Holding standa annars vegar Norcem AS og hins vegar hópur íslenskra fyrirtækja þar sem stærst eru Björgun og Jarðefnaiðnaður.
Arion banki endurreisti starfsemi B.M. Vallá eftir að B.M. Vallá hf. fór í þrot 18. maí 2010. Félagið var auglýst til sölu þann 31. mars 2011 og undirritaði BMV Holding kaupsamning þann 4. október 2011 en salan var háð samþykki Samkeppniseftirlitsins sem nú liggur fyrir.
Starfsemi B.M. Vallá á rætur að rekja allt aftur til ársins 1946 er fyrirtækið hóf sölu á steypuefni frá Vallá á Kjalarnesi.
Framkvæmdastjóri B.M. Vallá ehf. er Hilmar Ágústsson:
„Á þeim tæpu tveimur árum sem liðin eru frá stofnun B.M. Vallá ehf. hefur félagið verið markvisst byggt upp. Uppbygging félagsins hefur gengið vel og það er ánægjulegt fyrir félagið að nú sjái traustir fjárfestar sér hag í að fjárfesta í áframhaldandi starfsemi þess. Eigendaskiptin eru rökrétt framhald af endurreisn Arion banka á B.M. Vallá og ég tel að aðkoma nýrra eigenda verði félaginu og starfsmönnum þess til heilla".