06.08.2010
Breytingar á innra skipulagi bankans
Ákveðið hefur verið að gera breytingar á skipuriti bankans og verður fjárstýring aðgreind frá markaðsvipskiptum og felld undir fjármálasvið. Stefán Pétursson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri (CFO) sviðsins en hann hefur undanfarin ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs Landsvirkjunar. Eggert Teitsson verður aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálasviðs og Guðmundur Þórður Guðmundsson framkvæmdastjóri markaðsviðskipta að breytingum loknum.
Stefán Pétursson hefur starfað við ýmis stjórnunarstörf hjá Landsvirkjun og frá árinu 2002 hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs fyrirtækisins. Hann er með MBA próf frá Babson College í Massachusetts og er cand. oecon. frá Háskóla Íslands.
Stefán er fæddur árið 1963 og er kvæntur Ingunni Guðrúnu Árnadóttur landfræðingi og MPM og eiga þau tvö börn.
Jafnframt hefur verið ákveðið að gera breytingu á skipulagi innri og ytri samskipta. Iða Brá Benediktsdóttir forstöðumaður, mun leiða samskiptateymi á skrifstofu bankastjóra og verða ábyrg fyrir ytri og innri samskiptum, þ.e. almannatengslum, innanhússsamskiptum sem og samskiptum við bankastofnanir og fjárfesta.
Iða Brá Benediktsdóttir hefur starfað hjá Arion banka, áður Kaupþingi, frá árinu 2000 bæði í greiningardeild bankans en síðar í fjárfestatengslum. Nú síðast starfaði Iða sem forstöðumaður í fjárstýringu bankans. Iða er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur mastersgráðu í fjármálum frá Rotterdam School of Management. Iða er fædd árið 1976 og gift Einari Þór Guðjónssyni og eiga þau tvö börn.
Jónína S. Lárusdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lögfræðisviðs bankans og mun hún hefja störf eigi síðar en 1. nóvember. Jónína er með mastergráðu frá London School of Economics and Political Science (LSE) og er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Jónína hefur góða reynslu úr viðskiptalífinu þar sem hún hefur síðastliðin ár starfað í viðskiptaráðuneytinu, nú síðast sem ráðuneytisstjóri. Jónína er fædd árið 1970, er gift Birgi Guðmundssyni hagfræðingi og eiga þau tvö börn.