10.12.2008

Breyt­ingar á reglum hluta­bréfa­sjóða

Vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum hefur reglum eftirfarandi hlutabréfasjóða verið breytt:

Kaupþing ÍS-15 og Kaupþing Heildarvísitölusjóður

Eignum hvors sjóðs hefur verið skipt í tvo flokka, A og B. Í B flokk hafa verið færðir hlutir í Kaupþingi banka hf. og Spron hf. Í A flokk færast aðrar eignir.

Eign þeirra, sem áttu í sjóðunum fyrir lokun viðskipta 3. október 2008, verður deilt niður í A og B flokk í sama hlutfalli við skiptingu eigna í þessa flokka.

Opið verður fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í A flokki og mun sá flokkur fylgja fjárfestingarstefnu viðkomandi sjóðs.

Ekki verður hægt að kaupa hlutdeildarskírteini í B flokki og hlutdeildarskírteini í honum verða ekki innleyst að kröfu hlutdeildarskírteinishafa. Reynt verður að selja eignir í B flokki og mun sjóðurinn, á minnst þriggja mánaða fresti, greiða inn á vörslureikning hvers hlutdeildarskírteinishafa B flokks hans hlut, eftir því sem eignir seljast, uns engar eru eftir. Ef hlutdeildarskírteinishafi á ekki vörslureikning í bankanum verður reikningur stofnaður í hans nafni.

Með þessu móti verður hægt að eiga viðskipti með hlutdeildarskírteini sjóðanna í A flokki og einnig tryggja jafnræði hlutdeildarskírteinishafa við þær aðstæður sem nú ríkja.

Nafni Kaupþings ÍS-15 hefur jafnframt verið breytt í Fjárfestingarsjóðurinn ÍS-15.

Pantanir viðskiptavina, sem lagðar hafa verið inn eftir 3. október 2008, verða afgreiddar í dag. Uppgjör fer fram eftir þrjá virka daga (T+3) í samræmi við reglur sjóðanna.

Báðir sjóðirnir hafa að mestu fjárfest í hlutabréfum skráðum í OMX Nordic Exchange Iceland hf. Innlausn hlutdeildarskírteina sjóðanna var frestað 6. október 2008 vegna ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins um að stöðva tímabundið viðskipti með fjármálagerninga sem gefnir voru út af Kaupþingi, Landsbanka, Glitni, Exista, Straumi og Spron.

Viðmiðunarvísitala sjóðanna var Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands OMXI15 sem hefur lækkað um rúm 87% frá lokun sjóðanna 3. október til 9. desember 2008 og um 93,6% frá síðustu áramótum.

  • Lækkun á virði Fjárfestingarsjóðsins ÍS-15 frá 3. október nemur 66,3 % og rúmum 83% frá áramótum til 9. desember 2008.

  • Lækkun á virði Kaupþings Heildarvísitölusjóðs frá 3. október nemur 71,9 % og 85,2% frá áramótum til 9. desember 2008.

Við núverandi aðstæður verður lögð meiri áhersla en áður á fjárfestingar í óskráðum íslenskum hlutabréfum.

Kaupþing Úrvalsvísitölusjóður

Breytingar á reglum sjóðsins munu leiða til slita á sjóðnum. Ekki verður hægt að kaupa hlutdeildarskírteini í sjóðnum og hlutdeildarskírteini verða ekki innleyst að kröfu eigenda. Markmið breytinganna er að tryggja jafnræði hlutdeildarskírteinishafa.

Sjóðfélögum Kaupþings Úrvalsvísitölusjóðs verður boðið að færa reglubundinn sparnað sinn og eign yfir í aðra sjóði Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. án kostnaðar.

Kaupþing Úrvalsvísitölusjóður hefur frá stofnun 2001 fylgt mjög vel eftir eignasamsetningu og ávöxtun Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands. Þann 6. október 2008 ákvað Fjármálaeftirlitið að stöðva tímabundið viðskipti með fjármálagerninga sem gefnir voru út af Kaupþingi, Landsbanka, Glitni, Exista, Straumi og Spron. Frá þeim tíma hefur Úrvalsvísitala Íslands lækkað um 87% og er lækkun á virði sjóðsins í takt við lækkun vísitölunnar.

Slit á sjóðnum fara þannig fram að eign hlutdeildarskírteinishafa verður greidd inn á vörslureikning þeirra í Nýja Kaupþingi banka hf. Greiðslur munu berast eftir því sem eignir í sjóðnum verða seldar, en a.m.k. á þriggja mánaða fresti, uns engar eru eftir. Ef hlutdeildarskírteinishafi á ekki vörslureikning hjá Nýja Kaupþingi banka hf., verður vörslureikningur stofnaður í hans nafni.

Hlutdeildarskírteinishafar ofangreindra sjóða fá bréf á næstu dögum þar sem þeim verður tilkynntar ofangreindar breytingar.


10. desember 2008
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira