28.11.2008

Breyt­ingar á reglum og slit sjóða

Vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum hefur Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. ákveðið að breyta reglum eftirfarandi sjóða:

Kaupþing Hávaxtasjóður
Kaupþing erlend skuldabréf
Kaupthing Liquidity Fund EUR
Kaupthing Liquidity Fund USD
Kaupthing Liquidity Fund GBP

Breytingarnar munu leiða til slita á sjóðunum, en markmið breytinganna er að tryggja jafnræði hlutdeildarskírteinishafa.

Slit sjóðanna munu fara þannig fram, að eign hlutdeildarskírteinishafa verður greidd inn á vörslureikninga þeirra í Nýja Kaupþingi banka hf. Greiðslur munu berast inn á vörslureikningana eftir því sem eignir í sjóðunum verða seldar, á að minnsta kosti þriggja mánaða fresti, uns engar eignir eru eftir. Ef hlutdeildarskírteinishafi á ekki vörslureikning hjá Nýja Kaupþingi banka hf., verður reikningur stofnaður í hans nafni og greiðslur lagðar þar inn.

Ekki verður hægt að kaupa né innleysa hlutdeildarskírteini í sjóðunum.

Hlutdeildarskírteinishafar munu í kjölfarið fá sent bréf varðandi ofangreint.

28. nóvember 2008

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira