23.04.2014

Breyt­ingar á Vild­ar­þjónustu Arion banka

Þann 1. maí næstkomandi mun samstarfi Arion banka og VÍS ljúka og mun vildarþjónusta bankans taka breytingum í kjölfarið. Breytingin felst í því að viðskipti viðskiptavina bankans við VÍS munu ekki lengur telja sem þjónustuþáttur í vildarþjónustu Arion banka en breyting þessi hefur ekki áhrif á núverandi kjör viðskiptavina við bankann og VÍS. Hér má sjá nánari upplýsingar um vildarþjónustu Arion banka.

Viðskiptavinir eru hvattir til að hafa samband við bankann í gegnum netfangið arionbanki@arionbanki.is, hringja í Þjónustuverið í síma 444 7000 eða koma í næsta útibú bankans ef spurningar vakna vegna breytinganna. Snúi spurningarnar að VÍS er fólki bent á að hafa samband við vis@vis.is eða í síma 560 6000.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira