17.10.2011

Breyt­ingar í framkvæmda­stjórn Arion banka

Sigurjón Pálsson er nýr framkvæmdastjóri hjá Arion banka. Sigurjón tekur við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs bankans. Undir rekstrarsvið falla starfsmannasvið, upplýsinga- og tæknisvið, viðskiptaumsjón og eignaumsýsla. Á sviðinu starfa um 250 starfsmenn.

Sigurjón er verkfræðingur að mennt með meistaraprófsgráður frá KTH háskólanum í Stokkhólmi og MIT í Massachusetts. Sigurjón hefur starfað hjá bankanum og forverum hans síðan 2005, fyrst í fyrirtækjaráðgjöf, en undanfarin ár hefur hann starfað sem forstöðumaður í fyrirtækjalausnum. Sigurjón starfaði áður sem stjórnandi hjá Ístaki þar sem hann stýrði m.a. upplýsingatæknimálum og stærri verkefnum.

Sigurjón tekur við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs af Helga Bjarnasyni sem færir sig um set og tekur nú við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs. Helgi tekur við þeirri stöðu af Hermanni Björnssyni, sem nýverið var ráðinn forstjóri Sjóvár. Undir viðskiptabankasvið falla útibú bankans sem eru 24 talsins og stoðeiningar. Á sviðinu starfa um 420 starfsmenn.

Helgi Bjarnason hóf störf hjá bankanum í október 2010. Helgi er stærðfræðingur að mennt og með cand. act. gráðu í tryggingastærðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla. Helgi starfaði sem aðstoðarforstjóri Sjóvár áður en hann hóf störf hjá Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira