30.06.2011
Breytt framkvæmd innheimtu fjármagnstekjuskatts
Arion banki vill vekja athygli á því að frá og með 1. júlí nk. mun bankinn, líkt og önnur fjármálafyrirtæki, halda eftir 20% skatti af fjármagnstekjum þegar þær eru greiddar eða verða greiðslukræfar. Breytingin á fyrst og fremst við um fjármagnstekjur af verðbréfum, innheimtuskuldabréfum og kröfum þar sem vextir hafa verið að myndast yfir lengra tímabil en eitt ár. Fjármagnstekjur hafa verið greiddar árlega eða mánaðarlega af innstæðum á bankareikningum og því er um óbreytta tilhögun að ræða á þeim reikningum.
Fjármálafyrirtæki hafa það lögbundna hlutverk að halda eftir skatti af fjármagnstekjum viðskiptamanna sinna og skila í ríkissjóð. Skatthlutfall fjármagnstekjuskatts var hækkað úr 10% í 15% á miðju ári 2009, úr 15% í 18% í ársbyrjun 2010 og í 20% í ársbyrjun 2011. Hingað til hafa fjármálafyrirtækin reiknað þá fjárhæð sem halda ber eftir skatti af á grunni skattprósentunnar eins og hún var á hverjum tíma. Hækkuð skattprósenta hefur þannig aðeins náð til þess hluta skattstofnsins sem myndast hefur frá lögfestingu hennar. Þessi framkvæmd hefur verið í góðri samvinnu við embætti ríkisskattstjóra.
Við gerð rafrænna skattframtala í febrúar 2011 kom fram ógreiddur fjármagnstekjuskattur hjá viðskiptavinum og lýstu Samtök fjármálafyrirtækja áhyggjum af því og óskuðu skýringa frá RSK. Í bréfi sem RSK sendi Samtökum fjármálafyrirtækja þann 3. maí sl. kemur fram breytt álit RSK þess efnis að fjármagnstekjur skulu skattleggjast með því skatthlutfalli sem við á þegar fjármagnstekjur eru greiddar eða verða greiðslukræfar. Héðan í frá mun Arion banki því halda eftir 20% skatti af fjármagnstekjum en ekki horfa til lægri skatthlutfalla sem giltu á þeim tíma sem skattstofninn myndaðist.
Viðskiptavinir sem hafa greitt fjármagnstekjuskatt samkvæmt framangreindu á tímabilinu 1.1.2010 til og með 30.06.2011 mega búast við að mismunur myndist við álagningu ríkisskattstjóra, þar sem lægri fjárhæð var haldið eftir í staðgreiðslu en væntanlegum álögðum skatti á fjármagnstekjurnar. Ef viðskiptavinir eru ósáttir við álagninguna má kæra hana til ríkisskattstjóra með rafrænum hætti á vefsvæðinu skattur.is. Kærufrestur er 30 dagar frá tilkynningu álagningar. Ef yfirskattanefnd eða dómsstólar komast að annarri niðurstöðu en RSK um túlkun laganna ber RSK að endurgreiða oftekinn skatt.