14.08.2015

Bú­ist við 2.300 þátt­tak­end­um á Arion banka mót­inu í Vík­inni um helg­ina

Gera má ráð fyrir um 2.300 þátttakendum á Arion banka mótinu í fótbolta sem haldið verður nú um helgina, 15. og 16. ágúst á félagssvæði Víkings í Fossvogi. Hefur fjöldi þátttakenda þrefaldast frá því mótið var fyrst haldið árið 2010.

Arion banka mótið er fyrir 8. og 7. flokk stúlkna og drengja og er stærsta mótið þar sem stelpur og strákar spila á sama tíma. Mótið stendur yfir frá kl. 9-17 laugardag og sunnudag.

Keppt verður á 18 völlum og verður mótið í Sparilandsbúning. Bíbí, Blaki og Ari verða á svæðinu og allir þátttakendur fá verðlaunapening og Sparilandsbakpoka að gjöf ásamt máltíð frá Lemon.

Búast má við miklum fjölda fólks og skemmtilegri stemningu í Víkinni í Fossvogi um helgina þegar ungir fótboltaiðkendur ásamt þeirra stuðningsfólki kemur saman.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira