20.07.2012

Dóm­ar Hæsta­rétt­ar er varða lög­mæti er­lendra lána

Hæstiréttur hefur undanfarin misseri fellt dóma sem taka á lögmæti lána í erlendri mynt. Í kjölfarið hafa komið upp fjölmörg álitamál varðandi túlkun dómanna og hvernig skuli framfylgja þeim. Því miður þá hefur umtalsverð óvissa fylgt þessu ferli fyrir lántaka.

Arion banki lauk endurútreikningi erlendra húsnæðislána til einstaklinga snemma árs 2011 í samræmi við lög sem sett voru af Alþingi. Eftir uppkvaðningu dóms Hæstaréttar í júní 2011, í máli Mótormax gegn Landsbankanum, endurreiknaði Arion banki síðar á árinu um tvö þúsund lán til viðbótar, lán til fyrirtækja og einstaklinga. Þó dómurinn snéri ekki að láni sem bankinn var aðili að þá taldi hann fordæmisgildi dómsins það skýrt að ákveðið var að endurreikna öll þau lán bankans sem kváðu á um sömu efnisatriði og Hæstiréttur hafði talið ólögmæt.

Fyrsti Hæstaréttardómurinn sem fjallaði um lögmæti láns í eigu Arion banka féll þann 15. júní sl. Þá kvað Hæstiréttur upp dóm í máli Arion banka gegn Hætti ehf. Málið snerist um lögmæti lánssamnings félagsins þar sem lánsfjárhæðin er tilgreind sem „jafnvirði“ íslenskra króna, en lánsfjárhæðin var greidd til lántaka í erlendum myntum og lánið var að meginstefnu til greitt til baka í erlendum myntum. Meirihluti Hæstaréttar komst að þeirri niðurstöðu að um lögmætt erlent lán væri að ræða einkum með vísan til heitis lánssamningsins, tilgreiningar lánsfjárhæðarinnar og vaxta auk tilhögunar útborgunar lánsfjárhæðarinnar og greiðslu afborgana og vaxta, enda var talið sýnt að samningsaðilar hefðu báðir efnt skyldur sínar með því að fjárhæðir í erlendum gjaldmiðlum skiptu um hendur. Það er mat Arion banka að sambærilegir lánssamningar fyrirtækja og einstaklinga hjá bankanum falli undir fordæmisgildi dómsins.

Það er því ljóst að nú liggur fyrir niðurstaða um lögmæti, eða eftir atvikum ólögmæti, meginþorra erlendra lána bankans til fyrirtækja og einstaklinga. Rétt er þó að benda á að ekki hefur gengið dómur í Hæstarétti um allar tegundir erlendra lánssamninga bankans.

Endurútreikningur lána með ólögmætri gengistryggingu
Arion banki hefur lokið endurútreikningi á þeim lánum sem ljóst er að innihalda ólögmæta gengistryggingu, sbr. það sem að ofan greinir. Endurútreikningurinn var gerður í samræmi við fyrirmæli 18. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Þann 15. febrúar sl. kvað Hæstiréttur upp dóm sem að hluta varðaði endurútreikning láns með ólögmætri gengistryggingu þar sem fallist var á kröfu lántaka þess efnis að Frjálsi Fjárfestingabankinn gæti ekki krafið þá um viðbótargreiðslur vegna þegar greiddra vaxta aftur í tímann. Á þessum tímapunkti liggur ekkert fyrir um hvort og þá hvernig dómurinn hafi fordæmisgildi vegna gengistryggðra lána bankans.

Á undanförum vikum og mánuðum hefur Arion banki unnið að því að meta fordæmisgildi dómsins, m.a. í samstarfi við önnur fjármálafyrirtæki á vegum Samtaka fjármálafyrirtækja. Því samstarfi er nú lokið og er afrakstur þeirrar vinnu sá að fyrirhugað er að bera undir dómstóla ellefu ágreiningsmál, þar sem þess er freistað að leysa úr þeim álitaefnum sem sprottið hafa upp í kjölfar dómsins. Að svo stöddu liggur ekki fyrir hvenær niðurstaða fæst í þessi mál en vonast er til að það verði fyrir lok ársins 2012.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira