24.02.2012
Eignabjarg hyggst selja að lágmarki 10% eignarhlut í Högum
Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu að lágmarki 10% eignarhlut í Högum hf. Fjárfestingabankasvið Arion banka hefur umsjón með sölu hlutanna, sem mun fara fram í lokuðu útboði í samræmi við b-lið 1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Er ráð fyrir því gert að útboðinu ljúki fyrir 1. mars næstkomandi.
Stærð þess eignarhlutar sem seldur verður, mun ráðast af verðtilboðum þeirra fjárfesta sem leitað verður til, en núverandi eignarhlutur Eignabjargs nemur 19,3% í Högum. Fjármálaeftirlitið hefur staðfest að það geri ekki athugasemd við að bankinn haldi eftir upp að 10% eignarhlut eftir söluna.
Sátt bankans við Samkeppniseftirlitið varðandi yfirtöku bankans á 95,7% hlutafjár í Högum er enn í gildi en samkvæmt samkomulagi við Samkeppniseftirlitið ber bankanum að ljúka sölu á hinum yfirtekna hlut fyrir 30. júní næstkomandi.